sunnudagur, febrúar 04, 2007

Changes

Ég tók mig til og breytti um útlit á síðunni, síðan er ekki lengur sérstök, ég veit það, en græni liturinn heldur sér og ég er búin að læra að setja inn myndir sem ég hyggst nýta mér eitthvað í framtíðar bloggum. Hér til hægri er mynd af mér og kettinum okkar Huldu, Megasi. En þessi köttur er norskur skógarköttur og honum finnst gott að narta í tær sofandi fólks og kann að opna bjórdósir, hann hefur ekki ennþá sýnt neinum gosdrykkjadósum áhuga, bara bjórdósum. Jemm jemm jemm, gott hjá honum. En hér er semsagt meðfylgjandi mynd af kettinum.


Svona, þá kann ég það.

Jón Hafliði.


4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er afar myndarlegt kattardýr.

Breytingar vekja almennt hjá mér kvíða, en ég hlít að jafna mig á þessu.

Nafnlaus sagði...

Bloggið þitt er alltaf jafn dásamlega ljótt. Mikið er mig farið að vanta fjallgöngufélaga. Ertu ekkert á leiðinni austur?

Jón Knútur.

Nafnlaus sagði...

Ert framsóknarmaður Jón! Þetta er ömurlegur litur á blogginu þínu. kveðja
Raggi BJ

Sævar Jökull Solheim sagði...

Það passar, það er einmitt alltaf fullt af svona köttum út í skógi í Noregi.

En að skýra greyið "Megas" ...þvílík mannvonnska og grimmd sem býr innra með ykkur.