miðvikudagur, desember 15, 2004

Hver setti allt þetta hor í nefið á mér??

Jæja þá styttist óðum í jólin og síðasta prófið mitt er á morgun. Núna get ég talað um 30-40 mismunandi æxli í munni, 23 belgmein, heilan helling af veirusýkingum og að ég tali nú ekki um alls kyns meðfædda galla eins og smákjálka! Æðislegt.
Já, ég er staddur í vesturbænum og það er kalt sagði einhver. Og kulda fylgir ósjaldan kvef. Ótrúlegt þetta kvef, maður fer að sofa í góðum fíling, alveg heill heilsu og svo þegar maður vaknar og byrjar að reyna að tala eitthvað þá hljómar maður eins og Andrés Önd á hassi! Hvað er málið? Örfáir klukkutímar og nefið á mér er fullt af hori! Ég held að ég sé búin að snýta svona tuttugu lítrum síðan í morgun og er kominn með sár á nefið sökum ofsnýtingar og u.þ.b. eitt jólatré er búið að taka við horinu og fara beinustu leið í ruslið. Maður ætti kannski að setja á markaðinn eins konar neflegg sem seldur er í apótekum svo fólk þurfi ekki alltaf að vera að standa upp og snýta sér. Hmmm einkaleyfið á þessari hugmynd gæti tryggt mér og mínum bjarta framtíð. 50 lítra hólkur á bakinu fullur af hori........Nei annars, ég held ekki.

Ég held að ég láti þetta vera mitt síðasta blogg fram að jólum. Vér sjáumstum á nýju ári. Trýtilbuxi óskar öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. blebleble.

Engin ummæli: