þriðjudagur, september 20, 2005

Er Purple Rain gott lag?

Jájá, ég neita því ekki þrátt fyrir óútskýrt hatur mitt á Prince. Ég veit ekki af hverju, en ég bara á afskaplega erfitt með að þola þennan tónlistarmann. En ég neita því ekki að mér þykir nokkur lög með honum bara alveg þrælgóð.........En ég af einhverjum ástæðum þoli hann ekki. Svona er þetta bara.

Fór annars á útsölu í Skífunni um daginn og verslaði mér nokkra þrælgóða diska sem ég hefði átt að vera löngu búin að redda í safnið. Ég verslaði mína fyrstu Neil Young diska, Harvest og After the Gold Rush. Báðir alveg frábærir diskar. Neil Young er með barta......eins og ég............Og það er töff.
Einnig keypti ég Small Change með Tom Waits og þar er alger snilldar diskur á ferðinni, þarna syngur hann til dæmis um það að píanóið sé búið að vera að drekka....ekki hann, þó svo að hann hljómi eins og hann sé blindfullur. Reyndar hljómar Tom Waits alltaf eins og hann sé blindfullur og búin að reykja 300 metra af tommu sverum Kúbuvindlum. En það er bara hluti af hans snilldar karakter sem tónlistarmanns. Ótrúlegt hvað svona rámur maður getur samið og flutt fallega lög.......þrátt fyrir röddina. Ég vildi ekki heyra einhvern "mjúkan" syngja lögin hans, það væri alveg skelfilegt, bara ekki það sama. Sama má segja um flottustu lögin hans Megasar. Hann kann ekki að syngja en samt hljómar Spáðu í mig miklu betur með honum en nokkurn tíman Bo. Punktur. .
Svo keypti ég disk með sígaunabandinu Les Negresses Vertes. Það er skemmtileg hljómsveit sem drekkur eflaust slatta af rauðvíni. Og kannski bjór. Nei annars. Ekki bjór. Bara rauðvín......og viskí. Já. ´

bless í bili. Jón.

Engin ummæli: