Drekka allir landa upp til stranda?
Ég veit það ekki, en mig grunar ekki, fólk er farið að vera alveg ískyggilega edrú upp til stranda. Hver upp til stranda ætti svo sem að vilja drekka landa eftir að svona ömurlegt lag var samið um þessa landadrykkju þeirra. Hræðilegt.
Já þannig er það nú. Ég skellti mér í fjallgöngu um daginn og gekk á fjallið Mosfell eftir því sem ég best veit, en þar vafraði nóbelskáldið Halldór Silungur jafnan um á síðkvöldum eftir að hann hafði skrifað nokkur orð. Stórskemmtileg og nett ganga. En nú er planið að skella sér í fleiri göngur og er stefnan tekin á Móskarðshnúka, fyrir þá sem ekki vita hvaða tindar það eru þá eru þetta tindarnir sem líta út fyrir að sé alltaf sól á austur fyrir Esju, þeir sjást nokkuð vel úr Reykjavík og öðrum mjög nærliggjandi "sveitarfélögum". En það að fara í fjallgöngu er ein af mínum uppáhalds tómstundaiðjum og hefur verið í mörg ár. Það þarf heldur ekki að fara langt til þess að finna góðar gönguleiðir hér í kring, þetta er út um allt. Svo jafnast auðvitað ekkert á við bara það að komast úr þessari guðsvoluðu borg.
kv. Jón Hafliði
p.s. Notið tannþráð
Engin ummæli:
Skrifa ummæli