þriðjudagur, mars 22, 2005

Páskafrí = Háskafrí?

Ég veit það ekki maður. Nú eru blessaðir páskarnir að koma og stefnan er tekin austur. Býst við gríðarlegu bloggleysi meðan ég verð þar en hver veit nema maður komist í tölvu og bloggi aðeins eins og vitleysingur. Hver veit hver veit.

Já þetta ár verður viðburðaríkt og skemmtilegt, það er ég alveg viss um. Það er að minnsta kosti búið að vera skrambi skemmtilegt hingað til og mér sýnist á öllu að það sé ekkert að fara að hætta því. Ég fór um síðustu helgi í óvissuferð með skólanum og var farið í Leifstöð og fólk látið hlaupa eitthvað eins og vitleysingar, nema ég, ég fékk það mikilvæga hlutverk að vera keila og stóð mig með einstakri prýði. Svo var farið eftir það í Sandgerði, það er nú magnaður staður skal ég ykkur segja, en þar einmitt hún Hulda upprunnin því að í herbergi með hornglugga í húsi í Sandgerði fæddist drengur fyrir tæpum 50 árum sem heitir Guðni. Og það vill einmitt svo skemmtilega til að þessi Guðni er faðir Huldu og þar af leiðandi er hann tengdapabbi minn. Þannig að ég á býsna sterkar taugar þangað. Já! Þá vitið þið það!
Í Sandgerði var farið í eitthvað danshús og allir látnir fíflast eins og fífl og eftir það var farið á hinn mikla eðal pítsustað Mama Mia Pizzaria og ég held ég verði nú bara að segja eins og er að þarna eru bornar fram alveg eðal pítsur og mun ég eflaust gera mér ferð þangað dag einn til þess einungis að fá mér pítsu. Og ég mæli með því að þið gerið slíkt hið sama, þetta er ekki langur rúntur fyrir góða pítsu!!
Jæja nóg um það. Það er ýmislegt sem ég bara verð að koma frá mér. Til dæmis sú staðreynd að 7. júní verða tónleikar með hinni stórkostlegu hljómsveit Iron Maiden í Egilshöll og að sjálfsögðu voru keyptir miðar á þessa tónleika. Ég þurfti ekki einu sinni að pína Huldu til þess að koma með! Hana langar virkilega til þess að fara á þessa tónleika! Svona er maður nú vel giftur! Það má eiginlega segja að ég sé búin að vera að bíða eftir þessu alla mína ævi. En eins og flestir sem mig þekkja þá er ég og hef alltaf verið svæsinn Iron Maiden aðdáandi og má lesa um það einhvers staðar í gömlu bloggunum mínum. Já, ég bara held ég hafi fullan rétt á að vitna í hann Jesú vin minn; "Það er fullkomnað!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!".
Svo er nú ekki nóg með það. Þann 19. maí verður frumsýnd á Íslandi myndin sem lokar Star Wars seríunni og það kemur endanlega í ljósi hvernig Anakin Skywalker verður að hinum alvonda (en þó ekki alveg) Svarthöfða. Sú mynd ber nafnið Revenge of the Sith og er hægt að sjá trailerinn á kvikmyndir.is. Ó jess, ég ætla að sjálfsögðu að fara á þá mynd í lúxus sal enda starwars nörd og stoltur af því!!!

Megi Mátturinn vera með ykkur.

Engin ummæli: