fimmtudagur, janúar 13, 2005

Controversé

Já það eru greinilega skiptar skoðanir varðandi útlit þessarar síðu sem og innihald. Það þýðir að þessi síða er umdeild. Mér líkar það vel þar sem umdeildir hlutir eru oftast nær frekar vinsælir, en þó líka frekar óvinsælir sem gerir það að verkum að síðan veldur gríðarlegum umræðum þar sem það eru greinilega tveir pólar um Tannþráðinn sem rífast sí og æ um síðuna, hvort hún sé góð eða slæm, ljót eða falleg o.frv. Þetta er svipað og með Davíð Oddsson, hann er einn vinsælasti stjórnmálamaður Íslands en jafnframt líka einn sá óvinsælasti. Þeir sem dýrka hann og dá fylgjast vel með því sem hann segir og gerir og dásama það vitaskuld og slá um sig með einhverri dásemdinni sem er runninn af hans rifjum. Svo eru þeir sem þola hann ekki, þó svo að þeir þoli manninn ekki þá fylgjast þeir engu að síður með miklum áhuga (og reiði að sjálfsögðu) með því sem helvítis fíflið gæti gert og leggja ofuráherslu á þá slæmu hluti sem hann gerir og slá svo um sig með slíkum rökum þegar rifist er við strumpana. Sama mætti segja um Tannþráðinn. Því er Tannþráðurinn augljóslega ein vinsælasta, skemmtilegasta og fallegasta bloggsíða samtímans auk þess sem hún er ein óvinsælasta, leiðinlegasta og ljótasta bloggsíða vorra tíma.
Þar með tilkynni ég það hér með að ég sjái ekki ástæðu til þess að breyta síðunni neitt á næstunni þó svo góðir hlutir megi ávallt á sig rósum bæta.

Til áhenganda minna og andstæðinga nær og fjær; Kærar kveðjur.
-Trýtilbuxi.

Engin ummæli: