Eistu og Eggjastokkar
Já eistu og eggjastokkar, okkar elskulegu kynkirtlar sem gera okkur að því sem við erum. Við eigum öll uppruna okkar að rekja þangað, þarna syntum við okkar fyrstu sundtök(í eistunum) og svifum um og létum fín hár flytja okkur um bleikan fallegan gang (í eggjastokkunum+eggjaleiðarar).
Á þorrablóti étum við eistu. Ég geri það ekki því að mig langar ekki til þess. Ég ætla ekki að borða hrútseistu bara af því að fyrr á öldum borðaði fólk þau af illri nauðsyn á þessum kaldasta hluta ársins. Þá át fólk hreinlega allt sem hægt var að kyngja. Þar á meðal eistu. En eitt skil ég ekki........Af hverju eru ekki eggjastokkar á boðstólnum eða súrsað beljuleg? Eða jafnvel þurrkaðir hringvöðvar? Fólk át allt annað! En þetta er bara ég að vera með heimskulegar spurningar, það þarf engin að taka mark á því. Þorrablótið er yndislegur tími og við eigum öll að taka þátt í þessari yndislegu hátíð þar sem allt er étið og drukkið. Ekki ætla ég að mótmæla því, ég borða sjálfur kindaandlit og augu og slíkt (sá einhver Indiana Jones: Temple of Doom????). En það er eitt en sem ég verð að koma að, Þorrinn er eini tími ársins þar sem maturinn kemur betur lyktandi út úr manni heldur en hann fór inn tólf tímum áður. Það er eitthvað sem við megum vera stolt af!!!! Ég bara klökkna.
Kv. Trýtilbuxi
Engin ummæli:
Skrifa ummæli