föstudagur, febrúar 20, 2004

Alltaf gaman að míga í Smáralindinni. Það eru vitanlega forréttindi að fá að míga inni í risastóru typpi. Það er ekki nóg með það að Smáralindin líti út eins og risasór reður heldur er líka risastórt munstur á gólfinu þarna sem lítur út eins og sáðfruma. Þetta er að sjálfsögðu bara fallegt. Svo getur maður farið inn í Blöðruhálskirtilinn (Debenhams) og látið velja á sig föt að kostnaðarlausu, ekki að ég hafi gert það, an það væri samt spaugilegt að prófa það. En já ég var víst að tala um það að míga í Smáralindinni, ég var einmitt að míga í Smárabíóinu og það er nú alltaf gaman því það eru þarna setningar úr frægum kvikmyndum og allar eru þær fleygar. Þarna sá ég einmitt setningu úr einni af bestu myndum síðari ára, Pulp Fiction, setningin var í lokasenu brenglaðasta atriðis myndarinnar þar sem er nýbúið að nauðga Marcellus og hann er að fara að skjóta undan Zed (Zed´s dead baby, Zed´s dead..............Þvílík snilld) og Butch spyr hann "what now?" og þá segir Marcellus " This shit's between me and you and the soon-to-be-livin'-the-rest-of-his-short-ass-life-in-agonizing-pain, Mr. Rapist here." Þvílík snilld. Þessi mynd er uppfull af svona snilldarsetningum sem mér finnst að ættu að vera kenndar í skólum, PULP103. Þvílík draumaveröld sem þetta væri þá. ójáójá, jæja ég ætla að fara að hætta þessu bulli.

bíbí


Engin ummæli: