fimmtudagur, nóvember 27, 2008

log: 27. Nóvember 2008, staðartími: 16:39

Það er snjóstormur úti, kolbrjálað veður, sést ekki á milli ljósastauranna, fáir eru á ferli.

Ég er farinn út í skóg.

Jón Hafliði

mánudagur, nóvember 17, 2008

Afsakið orðbragðið en......

Þvílík djöfulsins andskotans snilld!!!!! Ég hélt að ég ætlaði að skíta á mig úr hlátri þegar ég rifjaði þetta meistarastykki upp. Meistarinn hefur elst vel.




Scatman John

mánudagur, nóvember 03, 2008

Asnalegar aðstæður.

Lenti í undarlegri stöðu á dögunum. Ég fór ásamt Huldu á vídjóleiguna hérna á Egilsstöðum til þess að leigja vídjó og hugsanlega kaupa eilítið snarl. Nú var það þannig að hún Hulda var svo elskuleg að sjá um það að splæsa í þetta skiptið, en það má gera þegar fólk er orðið gift. Svo fór að við ákváðum að leigja The Incredible Hulk (sem er n.b. helvíti góð).
Þá rann upp stundin, asnalegu aðstæðurnar sem fengu mig til þess að verða hálf kjánalegan, fór að glápa upp í loftið og í kringum mig og þykjast hafa áhuga á einhverjum gömlum veggspjöldum nokkrum metrum frá okkur. Því að þegar kom að því að borga fyrir myndina þá bað Hulda mig vinsamlegast að geyma fyrir sig bragðarefinn meðan hún borgaði myndina.
Svona leit þetta út: -Hulda borgaði myndina
-Myndin er "The Incredible Hulk"
-Ég stóð fyrir aftan Huldu eins og lítill krakki
-Ég var að gúffa í mig bleikum bragðaref eins og lítil stelpa

Það er gott að vera giftur.

Jón Hafliði

sunnudagur, október 12, 2008

Kjöthleifur og mótorhjól sem hverfa.


Hvað er eiginlega málið?





Engu að síður meistaraverk!

Fiskbúðingur

mánudagur, júní 23, 2008

The fantastic sheep

Ég öskraði eins og smástelpa þegar ég var á rúntinum á þjóðvegi 1 um daginn. Ég sá í fjallshlíðinni hóp af hvítum dýrum og var bara alveg handviss um að þarna væri komin ísbjarnahjörð.
Ég var komin með símann í lúkurnar og búin að á sambandi við 112 þegar ég sá þegar betur var að gáð að þetta voru bara nokkrar rollur. Jahh hvað á maður að segja, maður veit aldrei...ha? Gætu þetta ekki verið ísbirnir?

Jón....móðursjúkur

miðvikudagur, apríl 23, 2008

Hvað gerist eiginlega næst???

Það er bara allt að verða vitlaust í þessum vörubílstjóramálum! Það er meira að segja reynt að blanda Palestínu inn í þetta rugl, eða svona þannig.
Ég sé alveg fyrir mér næsta stóratburð í þessu hjá vörubílstjórum. Löggan verður komin þarna, Sturla froðufellandi af einhverjum flóknum taugafræðilegum ástæðum, ungmenni í nasistabúningum, grjótkast, táragas og bara algjör ringulreið. Þá kemur aðvífandi risastór, rauður og blár vörubíll. Þögn slær á hópinn. Vörubíllinn stöðvar á miðjum gatnamótum kringlumýrarbrautar og miklubrautar. Hann er ekki með neitt bílnúmer, einhver ræfillinn bendir á þá ómerkilegu staðreynd. Þvílíkur trukkur hefur aldrei sést á gaufslitnu malbiki Reykjavíkurborgar (sá hann samt oft í Gauksmýrinni heima). Hvaðan kom þessi bíll eiginlega? "Er þetta eitthvað fíflið frá íslenskum aðalverktökum?" Spyr Sturla af sinni alkunnu snilld, en hann kannaðist eitthvað við litina á trukknum. Nei þessi trukkur er sko ekki frá ÍAV.




Þetta er engin annar en Optimus Prime úr hinum margfræga ameríska mótmælendahópi trukkabílstjóra, Transformers. Gífurleg fagnaðaróp bárust frá vörubílstjórum íslands þegar þeir áttuðu sig á því hver var þarna kominn og.............

Get ekki haldið áfram, þetta er komið út í alltof mikla vitleysu.

Jón Hafliði

föstudagur, mars 28, 2008

The Lonius Monk

Ég ældi á einhvern starfsmann Skífunnar á Laugaveginum og labbaði út.

Halaði annars niður disk með prog powermetal bandi sem heitir því stórfenglega nafni Kamelot. Hef nett gaman af þessum power metal, gífurlegt goth og gífurlegur metnaður til þess að gera kröftuga og vel flutta rokkmúsík. Sannkallað nördarokk. Mæli eindregið með því að menn tékki á þessu. Platan sem ég halaði niður heitir því drungalega nafni The Black Halo. En ekki hvað?

Var annars á fyrirlestri hjá lýtalækni. Hann tók karlmann, framkvæmdi á honum eitt stykki kynskiptiaðgerð, sýndi okkur fyrir og eftir myndir og sagði: "hérna er komin stúlka sem fer nú og lifir eðlilegu lífi"

Að sjálfsögðu

kv. Jón Hafliði

P.s. heyrðuð þið fréttina um konuna sem lét breyta sér í karl og varð svo ólétt....ur?

sunnudagur, janúar 27, 2008

David Caruso er bara meistari!!!

Tímaspursmál hvenær maður lætur verða af því að stofna aðdáendaklúbb!





mánudagur, janúar 21, 2008

Bobby Fisher fallinn frá!

æ æ

Grafa hann á Þingvöllum sagði einhver.

æ æ

Heyrði eina góða tillögu: Brenna hann og setja hann í farandbikar Skáksambands Íslands. Íslandsmeistari fengi svo að hafa Bobby Fisher á arinhillunni í eitt ár.

Jón Hafliði

sunnudagur, janúar 13, 2008

Mál málanna!

Gömlu vesalingshúsin á Laugaveginum. Agalega er þetta bagalegt með þessi fallegu hús, það er bara alvega hræðil........

Afsakið.

Helvítis gömlu hjallarnir á Laugaveginum. Hvað eru menn að meina mað því að færa þessu kofaskrifli til þess að varðveita eitthvað. Það er eitt að varðveita hús sem eiga rétt á því að vera varðveitt og eitthvað er spunnið er í og annað að halda upp á gamla ljóta kofa sem eru orðnir handónýtir. Algjört væl! Ég segi brennum helvítis kofana og byggjum eitthvað nýrra og betra en þó ekki þannig að það skemmi þessa "fallegu" og "heilsteyptu" götumynd.

Já svo brann einhver kirkja í Kenýa. Nóg um það.

Jón.

föstudagur, desember 07, 2007

Próflestur.
Þessi klausa hangir upp á vegg á lesstofunni í Tanngarði og fær mann oft til þess að stappa í sig stálinu í lestrinum.

3. fasar ringulreiðar

1.fasi: Í þessum fassa átta menn sig á því að þeir hafa misst skipulagið úr höndunum. Í kjölfarið er vaðið úr einu yfir í annað og allt skilið eftir hálfklárað. Hér finnst mönnum námsefnið gjarnan samhengislaust og finna alls kyns blóraböggla, aðra en sjálfa sig, til þess að leggja sökina á. Menn eru hættir að bera harm sinn í hljóði.
2.fasi: Þessi fasi einkennist af miklu endurskipulagi pensúmsins. Menn standa gjarnan oft upp, hugsa stöðu mála, og koma með nýja lestraráætlun í hvert sinn sem þeir setjast niður aftur. Hver áætlunin á fætur annarri rennur hins vegar út í sandinn. Nú eru menn farnir að telja tíma fram að prófi. Þó nokkur ringulreið!
3.fasi: Þegar í nauðina rekur er mjög klassískt að ætla sér að nýta einnig næturnar til lesturs og sofa sem minnst. Undantekningarlaust bregðast þessi áform og menn velja að taka á örlögum sínum. Þessu stigi málsins fylgir TOTAL KAOS, kvíði, skert sjálfsmat, almenn vanlíðan og oft ógleði. .............eða eins og segir í laginu: „History never repeats, I tell myself before I go to sleep...“
J.Vilhjálmsson ´02
Datt í nettan 1.fasa í svona 2-3 klst í gær. Það leið sem betur fer hjá.
Kv. Jón Hafliði

miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Það heitasta í Hollywood í dag!

Já það verður ekki tekið af kananum að það er margt sérkennilegt sem honum dettur í hug þegar kemur að fegrunaraðgerðum og svoleiðis vitleysu. Sumir eru með þetta í fínu hófi og láta í besta falli hvíta á sér tennurnar eða setja krónur eða eitthvað svoleiðis og er það bara besta mál. Ef menn eru sérlega óánægðir með nefið á sér eða eyru eða með lítil brjóst eða eitthvað þá er hægt að láta laga það og er það bara besta mál, ekkert að því.

En.....Anal Bleaching ?!?!

Þetta finnst mér eitt það stórfenglegasta sem nútímalæknavísindi hafa kallað fram. Alveg er ég viss um að dr.Mengele dreymdi um þessa tækni til þess að fullkomna hinn aríska kynstofn.

Kv. Jón. youthful appearence......everywhere

þriðjudagur, nóvember 20, 2007

The Clinician

Reykjavík, haustdagar árið 2007.

Önnur skyndiárás í Bagdad, fjöldi saklausra lét lífið. Djöfulsins skítakuldi er úti maður. Klukkan er 06:45. Les lauslega helstu fyrirsagnir í fréttablaðinu á meðan ég háma í mig skyr, ekki eitthvað drasl sem endar á .is heldur alvöru skyr frá KEA. Að vísu bragðbætt með bláberjum og jarðaberjum. Fæ mér líka brauð og ávaxtasafa. Bursta í mér tennurnar, hengi fartölvuna á öxlina, fer út í bíl og keyri af stað. Rás tvö er í gangi, Gestur Einar og einhver kerling að tala saman og renna yfir fyrirsagnirnar í blöðunum. Önnur skyndiárás í Bagdad......ég hætti að hlusta og velti því fyrir mér hvort Ólafur Ragnar sé heima þegar ég keyri fram hjá Bessastöðum. Mögnuð þessi friðarsúla sem sést fjandi vel héðan af Álftanesinu. Það er smá ísing á malbikinu. Skiptir ekki máli, hún fer eftir þrjá tíma. Þarf að fara að láta setja nagladekkin undir. Skil ekki af hverju. "Hvað er eiginlega að þessum mönnum" segir Gestur. Veit ekkert hvað hann er að tala um. "Hérna er lag". Segir Gestur. "Já það líst mér vel á" segir Kerlingin. Svo byrjar lag með Eivöru Pálsdóttir. Held það heiti Mannabarn. Flott lag. Hvað í andskotanum heitir Kerlingin? Er þetta sama Kerling og í gærmorgun? Veit það ekki. Af hverju gefur þetta fífl ekki stefnuljós? Djöfull verður gott að fá sér kaffi. Hlakka til að fara austur í jólafrí. Snjórinn og kuldinn þar er miklu hlýrri heldur en hérna. Og vinalegari. "Jæja "-kvenmannsnafn-" hvernig væri að hlusta bara á eitt lag með bítlunum? Skellum something á" segir Gestur. Hækka í græjunum. Flottur bassinn í þessu lagi maður. McCartney leynir á sér. Helvítis hvalavinurinn. Vill ekki að það sé framleitt Foie gras eins og það er gert. Held að Arnold Svartsenegger borði það í morgunmat. Djöfull er erfitt að þola ekki Paul þegar hann er samt svona mikill snillingur. Hvernig væri að ræna þeim manni, svelta hann í 20 daga, færa honum svo foie gras og súrsað hvalspik á silfurfati. Hver væri væminn þá? Klukkan er 07:35. Fjöldi saklausra borgara í Bagdad lést í sprengjuárás......það er kveikt ljósið í kjallaranum í Tanngarði. Þá eru félagarnir mættir og það er heitt á könnunni. Sest í sófann, lappirnar upp á borð og drekk kaffi úr plastglasi. Hálftími þangað til klíníkin byrjar, sjúklingurinn mætir pottþétt 15 mín of seint og kennir umferðinni um....í þúsundasta skipti. Er bara að tefja það að setjast í stólinn. Þess vegna fæ ég mér annan bolla.

sunnudagur, september 23, 2007

Hvað í andskotanum er það sem gerir íslenskar kvikmyndir merkilegari en aðrar myndir?????

Ég get ekki ímyndað mér hvað það er. Er það kannski sú staðreynd að maður er oftast nær miður sín og fúll út í malbikið þegar maður kemur út úr bíósalnum? Eða að einungis tuttugasta hver bíómynd er grínmynd? Ég veit það svei mér ekki! En eitt er á hreinu!! Það er sú staðreynd að þessir vitleysingar sjá ástæðu til þess að láta vera helmingi dýrara að fara á íslenskar myndir í bíó. Og ekki nóg með það!! Ég sá blaðsnepil hangandi í miðasölunni í smárabíó sem á stóð: "Rétt er að minna á það að ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá ekki afslátt á íslenskar kvikmyndir." Eru íslenskir kvikmyndagerðarmenn og framleiðendur þeirra virkilega svo miklir ræflar að ekki er talið réttlætanlegt að veita ellilífeyrisþegum og öryrkjum afslátt á þessi "meistaraverk" sem þeir eru að skapa? Djöfulsins aumingjar!

Jón Hafliði.....skilur ekkert í því af hverju hann er að æsa sig yfir þessu.

sunnudagur, september 02, 2007

Bloggarinn mikli frá Kashmír snýr aftur úr sumarfríi.

Jæja þá er "the main man" byrjaður að blogga aftur. Skólinn að byrja og allof mikill frítími fyrir framan tölvur blasir við. Ég ætla að gera stutta samantekt á góðum og slæmum hlutum sem gerðust í sumar.

Góðir hlutir: Skemmtileg vinna í sumar, slatti af golfi, setti í fyrsta laxinn, fór til Grænlands, skaut í áttina að nokkrum gæsum, stórfengleg verslunarmannahelgi, gífurlegur dugnaður hjá mér og Huldu í týnslu á berjum og bruggun eðalvíns úr afurðunum, Mývatnsjamm í rjóðri o.fl.

Slæmir hlutir: Græænaaaa grænaaaa byltingin! hversu fullkomlega óþolandi var þetta?
Alltof fáar fjallgöngur. Ekkert alltof gott veður.
Allt fyrir ástina. skelfilegt lag, myndbandið hinsvegar stórkostlegt.

kv. Jón Hafliði

fimmtudagur, maí 10, 2007

Kosningalög?

Ég heyrði framsóknarlagið rétt í þessu. Ég held svei mér þá að þetta séu hálfvitar.

http://www.69.is/openlink.php?id=57261

Jón.

sunnudagur, maí 06, 2007

Próftíð og afmæli

Já, alltaf gaman að eiga afmæli og fara svo í próf daginn eftir. Ég gerði mér glaðan dag á afmælinu mín. Las allan daginn og fékk mér svo pítsu, gott ef ég var ekki 15 mínútum lengur í mat. En ég varð einmitt 26 ára 1. maí. En í huganum verð ég sko 18 till æ dæ. Shitt, djöfull er Kanadíska beikonið rosalegt. Þá er ég að meina Brian Adams, ég hef ekki smakkað kanadískt beikon, en ég ætla mér að gera það einn daginn, úti í Kanada, ekki Íslandi, en ég er ekkert að gera lítið úr íslensku beikoni, það er ágætt, danskt er samt betra, hef ekki prófað kanadískt, en kemur að því einn daginn, ekkert vera að hætta að borða íslenskt beikon þó ég hafi sagt þetta, er ekki verið að fara að flytja inn danskt beikon?, en kanadískt?, veit það ekki, en ætla að smakka það einn daginn.

Þetta voru óþarfa málalengingar.

JHS

laugardagur, apríl 28, 2007

Kosningar, kosningar kosningarkosningarkosningar.......eru í nánd!

Hvað í andskotanum á maður eiginlega að kjósa? Mér lýst nú bara ekkert á þetta lið, er alveg kolringlaður. Er að spá í að láta það ráðast hvaða dýri formennirnir líkjast mest þetta árið, þ.e. hvaða dýr líkar mér best við?







Ingibjörg Sólrún?








Jón Sigurðsson?








Guðjón Arnar?










Steingrímur J.?






Geir?







Ómar?



Svei mér þá ég bara veit það ekki.
kv. Jón Hafliði


þriðjudagur, apríl 24, 2007

Reykjavíkurborg hefur glatað gríðarlegum menningarverðmætum í ljótum bruna!!

haaaaa?
Svakalegur bruni já! gífurleg menningarverðmæti? Er það? Er það virkilega?
Kebab húsið? Aldrei komið þangað inn edrú! Held bara að engin hafi farið þangað inn edrú og fengið sér að éta. Kebab húsið er ekki menningarverðmæti!
Fröken Reykjavík? Bjó ekki Lalli Johns á gólfinu þar? Aldrei farið þangað inn! Króki var eins og heilsuspa við hliðina á þessari sjoppu! Menningarverðmæti? Nei!
Pravda? Nei! Hnakkabú! Ekki menningarverðmæti! Bar! Skítugur skemmtistaður. Ekki menningarverðmæti.
Hvað er fólk eiginlega að væla. Einu menningarverðmætin sem þarna brunnu voru einhverjar gamlar, morknar spítur. Ekkert mál að gera nýtt, enda búið að endurbyggja þetta þúsund sinnum!
Svo eru menn að væla um að götumyndin tapist. Hvaða fokking götumynd? Gamlir spýtukofar og 10/11? Þetta er nú orðið voðalegt snobb eitthvað. Það er nú ekki langt síðan elsti spýtukofi Reykjavíkur í Aðalstræti var rekin sem hommabar undir nafninu Jón Forseti!! Þetta er nú óttalegt rugl. Ef það verða reistir einhverjir nýjir spýtukofar, sem verður eflaust gert, þá verður eina menningarstarfsemin sem fram fer þar gosbjóradrykkja undir afleitri tónlist og skyndibitaát.....og kannski einhver slagsmál. Ég ætla að vitna í góðkunningja minn og segi bara:
"Þessir hommar kunna ekki að skammast sín!!"

Jón, nokk sama hvað gert verður við þessa "verðmætu" götumynd.

föstudagur, mars 02, 2007



Ég er í erfiðri klemmu!

Nú er ég eins og flestir vita bassaleikari og frekar mikið bassanörd svona almennt litið. Ég er t.d. áskrifandi að Bass Player, á tvo bassa, á hundleiðinlega diska með frægum bassanördum og svo fer ég reglulega inn á síður ýmissa fyrirtækja sem framleiða bassa. Nú er svo komið fyrir mér að mig langar í 6 strengja bassa. Af hverju? Spyrja eflaust margir. Af hverju ætti ég að vilja fá mér 6 strengja bassa? Svarið? Bara! Það er töff og býður upp á aðeins fleiri möguleika fyrir mig sem bassanörd. Ég get þá spilað fleiri bassanördalög sem enginn þekkir nema hann sé bassanörd. Og það er frábært. Ég veit að ég kaupi mér 6 strengja bassa einn daginn, ég bara veit ekkert hvenær. En ef ég skildi taka upp á því að kaupa mér 6 strengja bassa fljótlega þá verð ég að vita hvurnig tegund. Ég á Warwick 5 strengja bassa og mér finnst frábært að spila á hann þannig að mögulegt er að kaupa sér 6 strengja Warwick. Svo er til merki sem heitir Pedulla og það er líka mjög fallegir bassar og fá frábæra dóma í Bass Player. Svo er það Yamaha. En ég held að allir helstu bassanördarnir sem spila á 6 strengja bassa spili á Yamaha. Hvað á ég að gera. Ég ætla að nýta mér tæknina og henda inn myndum af þessum bössum og sjá hvað ykkur finnst. En lúkkið er 95% af þessu þegar maður er með 6 strengja bassa. Þeir eru allir góðir. En hver er flottastur? og hver færi mér best. Hugsið um það þegar þið skoðið gripina!







Það var bara til mynd af 5 strengja týpunni af þessum.





kv. Jón