Próftíð og afmæli
Já, alltaf gaman að eiga afmæli og fara svo í próf daginn eftir. Ég gerði mér glaðan dag á afmælinu mín. Las allan daginn og fékk mér svo pítsu, gott ef ég var ekki 15 mínútum lengur í mat. En ég varð einmitt 26 ára 1. maí. En í huganum verð ég sko 18 till æ dæ. Shitt, djöfull er Kanadíska beikonið rosalegt. Þá er ég að meina Brian Adams, ég hef ekki smakkað kanadískt beikon, en ég ætla mér að gera það einn daginn, úti í Kanada, ekki Íslandi, en ég er ekkert að gera lítið úr íslensku beikoni, það er ágætt, danskt er samt betra, hef ekki prófað kanadískt, en kemur að því einn daginn, ekkert vera að hætta að borða íslenskt beikon þó ég hafi sagt þetta, er ekki verið að fara að flytja inn danskt beikon?, en kanadískt?, veit það ekki, en ætla að smakka það einn daginn.
Þetta voru óþarfa málalengingar.
JHS
6 ummæli:
Síðbúin hamingjukveðja með daginn 1. maí
Hamingju með afmælið. Farðu samt varlega í svon sukk. Ófáir tannlæknarnir hafa misst sig í sex, drugs and rock and roll.
Ég hef það í huga Orri minn. Ég mun færa mig óðum yfir í soja beikon og tofupylsur. Það er miklu betra.
Það verður að teljast skynsamlegast. Ég hef samt meiri áhyggjur af pizzuáti og lengingum matartíma. Það er leiðin til glötunar.
Ekki ef það eru speltpizzur með sojakjöti
vá... þvílíkar málalengingar hef ég ekki séð lengi.. en til hamingju með daginn um daginn.. kveðja frá Köben..
Skrifa ummæli