fimmtudagur, janúar 29, 2004

Jæja en einn dagurinn að klárast. Hér sit ég og geri lífefnafræði skýrslu og skemmti mér konunglega við það. Það er alveg óþolandi þegar maður lendir í því að þegar maður er greina ísóensím eins og laktatdehydrogenasa (LDH) að litunin mistekst og allt sem maður fær á rafdráttarblaðið er stór fjólublá klessa hahahahahaha kennist þið ekki við þetta???? Hahahahaha þetta er alveg ótrúlegt. En maður brosir bara við svona fyndnum hlutum.

Já svo er ég að fara að spila með Búálfunum á Gauknum í kveld og annað kveld og ætli það verði ekki dágott stuð. Það er altaf gaman að spela þó svo að maður lendi stundum í því að manni líði eins og vélmenni, sum lögin er maður bara búin að spila svo oft að maður gæti gert það þótt það væri búið að höggva af manni alla útlimi. En reyndar er búið að vera alveg frábært að spila þessa dagana því það er komin alveg ný orka í hljómsveitina eftir að við fórum að æfa í alvöru græjum þar sem ég og Orri gátum til dæmis eitthvað heyrt í okkur og leikið okkur almennilega. Svona á þetta að vera. Ég mun halda áfram að berjast fyrir búningakaupum hljómsveitarinnar........Ég gefst ekki upp.

Engin ummæli: