föstudagur, nóvember 21, 2003

jájá svona er þetta nú. Hér situr maður nú bara heima veikur og vorkennir sjálfum sér eins mikið og mögulegt er. Af hverju í ósköpunum er engin hérna til þess að mata mig.....veikan manninn. Þvílík angist og kvöl. AAAAAAAARG.
jæja þá er ég búin að vorkenna sjálfum mér nóg í bili.

Hún er freistandi viskíflaskan í hillunni. Fyrirtaks single malt viskí frá Skotlandi stendur þarna og segir við mig: "drekktu mig Jón.....drekktu mig, þú átt það skilið, þú ert veikur, drekktu mig"
En ég held ég sleppi því núna.
"drekktu mig"
nei
"einn einfaldan"
njaeinejaööööNEI

Jæja þá er maður búin að prófa að blogga í fimm mínútur. Þvílíkt og annað eins.

Engin ummæli: